Jæja þá er bara komið nýtt ár og margt spennandi frammundan á nýja árinu

Börnin halda áfram að eldast og vá, hann Þorsteinn okkar er að verða 8 ára

Tanja Björk 2 ára

Og litli krúsilíusinn hann Hrafnkell Ingi 1 árs

Þó það sé nú þó nokkuð í það hjá litla prinsinum.
Ég verð 26 ára og kallinn 28 ára múhaha, hann er bara að verða 30 ára kall greyið

Litla Birtan okkar verður 3 ára 8 febrúar, sakna hennar alltaf jafn mikið. Við fórum til hennar á jólunum og gamlársdag og settum kerti og fleiri engla hjá henni. Svo er hún með sæta bangsann sinn sem Þorsteinn gaf henni og Þorsteinn var svo sætur að hann skrifaði jólakort til hennar í skólanum; Gleðileg jól litli engillinn minn. Guð hvað mér fannst það fallegt af honum

Hann man alltaf eftir henni líka. Við setjum alltaf stjörnuljós á leiðið og kveikjum á þeim nema núna! Aulinn ég ruglaðist á kössum og tók kínverkabelti með mér

Adam líka horfði á mig með undrunaraugum og spurði hvort ég ætlaði að fara sprengja þetta hérna? Þá fattaði ég að þetta voru ekki stjörnuljósin sem ég hélt að ég væri með...
Við erum búin að hafa það rosalega gott um jólin og áramótin, fengum helling af æðislegum jólagjöfum og krakkarnir líka, sú allra besta var að koma heim á aðfangadag frá Boston með Hrafnkel eftir fullkomlega vel heppnaða aðgerð

Ég er svo að byrja í átaki á mánudaginn með Sollu minni og hlakka bara alveg geggjað mikið til

Hlakka svo til að komast í gamla formið mitt að ég get ekki beðið, gera eitthvað fyrir mig sjálfa en það hefur ekki verið mikill tími til þess undanfarna mánuði held ég bara.
Við Solla erum búnar að kaupa okkur kort í Hress og erum að bíða eftir því að heyra frá Telmu einkaþjálfara, svo á ég kort í Bailine sem ég fer í 2x í viku

Ætla svo að synda með þegar ég hef tíma og vera á LR með, en ég átti það frá því ég var í átaki síðast en varð að hætta þar sem lítill Hrafnkell var búinn að koma sér fyrir í bumbunni minni

Ég vann líka einhverja vafninga hjá Fyrir og Eftir og er að hugsa um að skella mér í það einhverntíman líka.
Adam er svo að byrja vinna aftur en hann fór aftur í fæðingarorlof á meðan við fórum út með Hrafnkel en svo byrjar hann aftur núna í janúar að vinna. Fer upp í álver svo hann er farin út hérna kl 6 á morgnana en er þar af leiðandi komin heim kl 17 svo við eigum lengri tíma með honum eftir vinnu

Það eru svo komnar myndir inn á barnaland frá jólunum en ég var að reyna setja inn frá áramótunum og Boston en það er eitthvað bilað dæmið sem ég not til þess, vonandi kemst það bara fljótt í lag

Gleðilegt nýtt ár elskurnar og hafið það sem allra best

Kveðja Heiða Ósk.